BÓKA BÁS

HAFðU SAMBAND OG BÓKAÐU SVÆÐI!

 

Þátttökukostnaður

STÓRELDHÚSIÐ 2024 hlaut einstaklega góð viðbrögð frá sýnendum og starfsfólki úr stóreldhúsum sem mætti alls staðar að af landinu.

Fjöldi fyrirspurna sýnir mikinn áhuga fyrir næstu sýningu. Sýningarsvæðið í Laugardalshöllinni hefur reynst sérlega hentugt er varðar rými loftgæði, hljóðvist og staðsetningu. Þá er í reynd alveg sama hvar sýnendur eru staðsettir á svæðinu – hver og einn bás nýtur sín vel enda í sama rými.

Básaverð: Básaverð verður kr. 24.500 p. fm. án vask. sem verður að teljast einkar sanngjarnt, en ekki verður selt inn á sýninguna. Einnig fá sýnendur eins marga boðsmiða og hentar án endurgjalds og passa fyrir starfsfólk á básum.

Staðfestingargjald er kr. 45.000 án vsk. (óafturkræft). Innifalið er m.a. teppi, punktalýsing í almennu rými, internet, öryggisgæsla, ræsting á göngum og markaðssetning.

Tímasetning: Sýningin hefst kl. 12.00 á fimmtudag og föstudag og lýkur kl. 18.00

Básakerfi: Sýnendum er velkomið að velja á milli sýningarkerfafyrirtækja eða koma með eigið kerfi. Ritsýn er í samstarfi við Merkingu sem er með tilboð á kerfum með veggjum, lýsingu og merkingu hatti, kr. 9.900 p. fm. án vsk. Hafið samband við Hjördísi 620 0017 / 556 9000 syningar@merking.is .  

Rafmagnsnotkun er innifalin en ekki tenglar og annar rafmagnsbúnaður sem er lagður í bása. Hafið samband við Sonik; Hlynur, hlynur@sonik.is, s. 664 6443 og Gunnar, gunnar@sonik.is, s. 893 7037 varðandi pantanir á tenglum og öðrum rafbúnaði.

Ritsýn er ekki með básakerfi.

Skráning: Vinsamlega hafið samband sem fyrst varðandi skráningu ykkar fyrirtækis.

Hér gefst einstakt tækifæri á að kynna vörur og þjónustu fyrir stóreldhúsamarkaðnum.

 

FRAMKVÆMDARSTJÓRI
Ólafur M. Jóhannesson
TÖLVUPÓSTUR
SÍMI

698 8150

MARKAÐSSTJÓRI
Inga
TÖLVUPÓSTUR
SÍMI

898 8022