STÓRELDHÚSIÐ 2026
STÓRELDHÚSIÐ 2026 verður haldin í Laugardalshöll 5.-6. nóvember 2026.
Stóreldhúsið er fagsýning fyrir stóreldhúsageirann. Sýningin hefur verið haldin annað hvert ár síðan 2005. Hefur hún vaxið ár frá ári sem sýnir hversu vel hún nær til markhópanna. Helstu markhópar sýningarinnar eru: skólarnir, vinnustaðir, stofnanir, spítalar, hótel, veitingageirinn, mötuneyti, skyndibitastaðir, bakarí, framleiðslueldhús og matvælaiðnaður.
Eingöngu fagfólki frá ofangreindum vinnustöðum er boðið á sýninguna. Fyrirtæki geta sýnt og kynnt fyrir fagfólki matvörur, tæki, búnað og annað er tilheyrir stóreldhúsum. Á sýningunni STÓRELDHÚSIÐ gefst einstakt tækifæri á að kynna vörur og þjónustu fyrir stóreldhúsamarkaðnum.
Ljósm.: Jón Svavarsson © MOTIV
